Aðalvalmynd

Prófíll

Auglýsing

Önnur blogg

Nóg að geraElísabet Ósk Vigfúsdóttir





Já það er búið að vera svo rosalega mikið að gera hjá okkur undanfarið og þess vegna lítill tími til að blogga.
En allavega þá er allt fínt að frétta af okkur.
Ég rosalgea ánægð í vinnunni minni og sátt við það val sem ég tók. Fyrir þá sem ekki vita hvað ég á við með því þá var mér boðin vinna á sængurkvennaganginum og á líffæraskurðdeildinni. Þetta var voða erfitt val þar sem ég elska að vinna með litlu krílunum en fannst samt svo mikilvægt sem nýlærð hjúkka að byrja að vinna á almennri deild. Ég get alltaf farið í hitt seinna. En ég er þó ekki búin að gefa upp drauminn um ljósmóðurina og er það mín nýjasta stefna ég ÆTLA mér einhverntíman að skella mér í ljósuna. Það er bara spurning hvenær Laughing

Krakkarnir eru hressir og kátir. Við fórum í foreldraviðtöl hjá þeim í seinustu viku. Það gengur rosalega vel hjá þeim í skólanum og eru kennararnir rosalega ánægðir með þau. Viktor er víst bestur í öllum fögum í sínum bekk sem gerir mann að sjálfsögðu pínu stoltan.

Jens er búin að vera á flakki undanfarið. Í þarseinustu viku var hann viku í Englandi og er nú búin að vera í viku á íslandi en hann kom heim seint í nótt. Báðar ferðirnar út af vinnunni. Svo við krakkarnir erum búin að vera svolítið mikið ein að dúlla okkur upp á síðkastið. Ég er búin að vera á dagvöktum þann tíma sem hann hefur verið í burtu svo við þurftum að vakna ofur snemma. Þau voru komin í gæslu og leikskóla kl 6:30 svo ég gæti verið mætt í vinnu kl 7. Síðan hef ég verið að sækja þau eftir vinnu og þá má segja að dagurinn hafi verið búin allir að læra heima svo elda mat, bað og annað svo ég get ekki annað sagt en að tíminn hafi liðið ótrúlega hratt undanfarnar 3 vikur.

Við fórum um daginn í myndatöku til Línu. Ég er ekki búin að fá myndirnar en copyaði af myndasíðunni hennar Línu þrjár.
En jæja ég ætla að fara að undirbúa mig fyrir fund upp í vinnu og svo fer ég á kvöldvakt strax eftir fundinn.




Ég er komin heim í heiðardalinnElísabet Ósk Vigfúsdóttir

Þá erum við komin heim aftur eftir æðislegan tíma á Íslandi og Lanzarote og orðin mörghundruð íslenskum orðum ríkari. Já við spiluðum svo mikið scrabble þarna úti að það munaði litlu að við færum að dreyma scrabble á nóttunni.
Tíminn var annsi fljótur að líða á íslandi og fórum við lítið sem ekkert í heimsóknir. Við fórum í mat til ömmu og afa, Öldu og Stefáns og Bjögga og Ástu og áttum yndislegar stundir með þessu fólki. Síðan fórum við að sjálfsögðu í brúðkaupið til Louisu og Lárusar sem var rosallega fallegt, góður matur og flott skemmtiatriði.
Á Lanzarote var lítið annað gert en að slappa af, liggja í sólbaði og sem áður nefnt scrabbla og að sjálfsögðu njóta góðra samverustunda með öllu fólkinu okkar sem voru úti með okkur en við vorum 15 talsins.

Núna erum við að súpa seyðið af öllum rólegheitunum og afslöppuninni því alvaran er jú tekin við Ullandi
Börnin voru búin að missa þrjár vikur úr skóla og þar af leiðandi eru þau orðin töluvert á eftir bekkjarfélögunum. Vegna þessa er lítið annað búið að gera hér heima eftir að Jens og börnin eru komin heim á daginn en að láta þau læra og aftur læra. Þetta kemur allt saman og fljótlaga ná þau hinum öllum. Við verðum bara að vera dugleg að sitja yfir þeim og hjálpa því litlir heilar eiga mjög auðvelt með að fá hugann til að reyka og gera eitthvað allt annað en það sem þau ættu að vera að gera.

Á meðan við vorum í burtu gerðist harla lítið hér. Það voru þó tvær turtildúfur sem fóru að rugla saman reitum tralalallala. Svo var ein ónefnd vinkona sem keyrði niður hjólreiðargaur. Annars gekk víst allt áfallalaust fyrir sig hér í baunalandi.

Kristín (sem ég er oft með í ræktinni) hringdi í mig fyrradag og spurði hvort ég ætlaði að koma með henni í ræktina. Hún sagði að mín hefði verið sárt saknað úr ræktinni he he he Og vá greynilega það mikið að þegar að ég var að fara að panta mér tíma á heimasíðunni hjá þeim í gærmorgun sá ég að það er komið nýtt útlit á síðuna hjá þeim, rosa flott orðin síðan en vóvóvó það er barasta komin mynd af mér í tíma á forsíðuna díses kræst það var ekki nóg að það hafi komið mynd af mér í blöðunum forðum. En jæja þetta gerir ekki mikið til töluvert minni mynd en var í blaðinu svo ég held að fæstir sjái endilega að þetta sé ég hi hi.

Ég er búin að vera að vinna eitthvað á sængurkvennaganginum síðan við komum heim. Eg er svo að fara að vinna á eftir á líffæraskurðlækningadeildinni þar sem ég var í praktík á 3 önn og var reyndar líka að leysa af þar eitthvað eftir það. Mér kvíður reyndar pínulítið fyrir því það er tja 1 1/2 ár síðan ég var þar síðast og mín komin út úr allri rútínu á deildinni. Ekki bara það heldur er ég jú orðin hjúkka núna svo núna þarf ég að taka ábyrgð á sjálfri mér og sjúklingunum mínum og það krefst jú þess að vera með hlutina á hreinu. Deidarhjúkkan vill endilega að ég sæki um því það vantar í stöðu hinum megin þeas í vest en þar sem ég hef verið er øst samt sama deildin bara skipt ví þessa tvo hluta og tvær deildarhjúkkur. En nú hef ég allavega möguleikann á þessum vöktum sem ég hef þar núna á næstunni til að spökulera í því hvort það sé eitthvað sem ég myndi vilja.
En það er verið að auglýsa eftir starfsfólki á gjörgæslu vökudeild í Skejby í Arhus. Mig klæjar alveg í puttana að sækja um þar en okkur finnst eiginlega báðum það of mikið að keyra bæði á sitthvorum tímunum lengst til Arhus og það yrði líka of mikið púsluspil út af börnunum. En hvar ég fer að vinna kemur allt í ljósþað er heldur ekkert stress í gangi neitt.

Á morgun förum við svo á fest hjá SFO gæslunni hjá krökkunum þar sem allir koma með eitthvað að borða og svo verður það allt lagt á sameiginlegt matarborð. Á Laugardagskvöldið förum við svo í 35 ára afmæli hjá Sigga hennar Línu og á Sunnudaginn er okkur boðið í kaffi til Louisu og Lárusar.

En jæja ætla aðeins að lesa smá áður en ég legg af stað í vinnuna.
Knus og kramm á línuna

Í sól og sumaryl ég samdi þetta bloggElísabet Ósk Vigfúsdóttir

Já það er óhætt að segja að sólin hafi látið sjá sig hér í Danaveldi en það er búið að vera um og yfir 30 stiga hiti hér síðan ég kom frá íslandi.

Það er rosa gott að vera komin heim aftur en ég var farin að sakna Jens og stóru krakkana allsvaðalega.
Ekki það að það var alveg frábært að vera á íslandi og hitta ættingja og kunningja. Að sjálfsögðu hefði ég vilja hitta enn fleiri og eyða enn meiri tíma með þeim sem ég hitti svo stutt en svona er þetta bara.

Ég náði nú samt að sá nýja kútinn hennar Helgu vinkonu hann Edvard Þór. Mér fannst rosa skrítið að allt í einu var komið nýtt barn á þeirra heimili en ég sá hana ekki ófríska og reyndar ekki af Stefáni heldur.
Ég var líka voða lukkuleg yfir að Berglind frænka hafi verið svo sæt að gefa sér tíma til að koma og hitta mig heima hjá Öldu eitt kvöldið og áttum við frábæra kvöldstund þar saman. Það er alltaf svo gaman að hitta Berglindi enda vorum við algjerar samlokur þegar við vorum börn.
Ég fór líka eitt kvöldið á Café Aroma til að hitta Ástu og Fjólu og tók Öldu systir með mér. Það var voða gaman og ég held að Alda hafi alveg fundið sig með okkur hjúkkunum þó við höfum mikið verið að ræða um starfið okkar en auðvitað ræddum við margt annað líka.
Völu vinkonu hitti ég líka fyrir tilviljun í Krónunni, var reyndar því miður á hraðferð. Hana hef ég ekki hitt í mörg ár en ég lofaði henni að kíkja á hana og litla snáðan hennar næst þegar ég kem á klakann.
Óskar frændi og Sigga buðu okkur mömmu ásamt Öldu og Stefáni í mat á föstudagskvöldinu. Það var æðislega huggó, rosa góður matur, innbakaðar svínalundir og frómas í eftirrétt nammi namm svo ekki sé talað um skemmtilega stund með frábæru fólki. Seinna um kvöldið komu svo Sylvía og Helena vinkona hennar þangað og við þrjár ásamt Öldu enduðum í "menningar skoðunarferð" í miðbæ Reykjavíkurborgar og skemmtum okkur konunglega.

En til að toppa ferðina verð ég að nefna brúðkaup Ragnars frænda og Ollu sem var á Laugardeginum. Þetta var yndislegt brúðkaup og var veislan með spænsku ívafi. Ragnar er sjálfur hálfur spánverji og var pabbi hans staddur á Íslandi til að vera viðstaddur vígsluna og að sjálfsögðu veisluna. Ragnar og Olla eru líka að fara að flytja til Spánar í næsta mánuði (að ég held) því Ragnar ætlar að fara að læra eitthvað meira í tölvubransanum.
Eftir veisluna enduðum við Sylvía, Tinna og Lilja að sjálfsögðu í menningarskoðun í miðbæ Reykjavíkur. Alda fór ekki með að þessu sinni. Hún fór bara heim að sofa var hálf slöpp greyið eftir menningarferðina nóttina áður. Í bænum hittum við Ástu, Bjögga og vinkonu Ástu en það var reyndar planað að hitta þau þar. Við skemmtum okkur að sjálfsögðu rosa vel.
Ný vöknuð eftir brúðkaupið og menningarferðina var ekkert annað í stöðunni en að klára að pakka og gera okkur Natan ferðaklár enda heimför í nánd.
Heimferðin gekk bara mjög vel við mamma með Natan auk tveggja auka barna í farartaskinu hann Sindra og hana Hörpu.

Við Natan vorum þó ekki svo heppin að hitta Jens þegar að heim var komið því hann var þá farinn í vinnuferð til Englands. Það var ekki fyrr en seint á Miðvikudagskvöldið að hann kom heim.

Á Föstudagskvöldið borðuðu Anna og Harpa hjá okkur. Eftir matinn komu svo Sylvía og Fannar eftir Legolandsferð og við fullorðna fólkið fórum að spila Scrable og börnin að horfa á barnaefni. Jens greyið þurfti að láta sig hafa það að spila með okkur stelpunum. Við vorum samt voða hugulsamar og ekkert að ræða túrtappa né útferðir eða neitt því um líkt. En hann varð samt fyrir því að vera véfengdur tvisvar sinnum þar sem við vorum ekki að gúddera tvö orð hjá honum. Við gáfum okkur þó eftir smá þras og símhringingar með fyrsta orðið en síður en svo með það næsta, nei "HÁÐIÐ" væri sko ekkert orð og við gerðum bara grín að honum og gáfum okkur sko ekki. Við þurftum nú samt að éta það ofan í okkur næsta dag því þetta orð er víst til úúúpppss. Hann fyrirgaf okkur nú samt alveg og spilaði með okkur aftur á Sunnudagskvöldið og vorum við stelpurnar mun passasamari á fullyrðingunum og ekkert að véfengja hann neitt. Hann hefði meira að segja getað búið til all nokkur bull orð því við hefðum ekki þorað að setja okkur upp á móti orðunum hans aftur hi hi hi.

Svo var ég svo agalega heppin í gær að snúa á mér ökklann í ræktinni. Ég tek það skýrt framm að það var ekki mér að kenna heldur stelpunni fyrir framan mig. Ég var í stepp tíma og áttum við að fara öfugu megin yfir pallinn. Stelpan fyrir framan mig fór hins vegar ekki yfir þannig að ég fer beint á hana. Hún var töluvert stærri en ég á alla kanta svo ég hrundi gjörsamlega niður og tókst að snúa fótinn. Anna var sem betur fer með mér og hjápaði mér framm þar sem ég fékk ís á fótinn. Við hringdum svo í Jens og tilkynntum honum hörmungina og báðum hann að koma og sækja litlu skotturnar (Lára og Harpa voru með okkur) því við þyrftum að fara upp á slysó. Mér var enganvegin að takast að stíga í fótinn og fann svo til þegar ég hoppaði að Jens þurfti að halda á mér út úr ræktinni og út í bíl, frekar pínlegt fyrir mig en hann var nú heldur stoltur held ég ha ha ha . Eftir yfir tveggja tíma bið á slysó var ég send í röntgen og send heim með teygubindi um ökklann. Já mín illa tognuð með teygt liðband og get ekki stigið í fótinn Gráta Anna var nú samt að reyna að hughreysta mig og sagði "Elísabet mín þú situr bara úti í sólinni á morgun og hefur það gott með fótinn út í loftið og slakar á" en neiiiii það er nefninlega ekki svo gott því Elísabet má bara alls ekki vera úti í sólinni. Já ég er á svo sterku pencillini (er með leiðindar nýrnasýkingu) að maður má alls ekki vera í sól því húðin verður svo næm fyrir sólarljósi á þessu pencillini að hún hreynlega brennur Gráta Það er semsagt ömurlegt ástand á mérnúna og ég messt svekkt yfir að komast ekki í ræktina. Ég sem ætlaði að vera svo dugleg í ræktinni áður en ég fer til íslands í næstu viku. Verð að viðurkenna að mér drullu brá þegar læknirinn sagði "þú ert annað hvort brotin eða búin að slíta liðbandið" sá fyrir mér að ég yrði í gipsi og á hækjum á Lanzarote. En sem betur fer var þetta ekki svo slæmt og er ég með ís á fætinum á klukkutíma fresti því ég ætla að vera orðin góð í fætinum áður en við förum til Lanzarote.

Þrátt fyrir þetta nýrna og ökklavésen á mér erum við öll búin að hafa það mjög gott. Sindri og Viktor Máni eru algjerir samlokufrændur og búinir að skemmta sér vel saman. Akkúrat núna eru Jens og Martin með þá og syni Martins úti að keyra krossara og skemmta þeir sér eflaust mjög vel.

Svo er smá "ferðalag" í vændum hjá okkur um næstu helgi. Já okkur er boðið í verzlunarmannahelgar afmælispartý hjá Drífu og Einari en það er Drífa sem er afmælisbarnið. Þau búa úti í sveit og eru með risa garð sem fólki er boðið að tjalda í svo hægt sé að gista og halda afmælis og verzlunarmanna stemningunni í fullu fjöri lang framm á nótt. Við ætlum því að taka tjaldvagninn okkar með og eiga góða helgi öll saman hjá þeim. Það verður eflaust rosa gaman enda er spáin frammundan alveg æðisleg. Ég þarf bara að passa að halda mér í skugga svo ég brenni ekki ha ha ha

Svo líður óðum að annari íslansferð og ekki víst að ég komi með annað blogg fyrir hana. En við erum að fara í brúðkaup hjá Louisu og Lárusi um þar næstu helgi og að sjálfsögðu erum við orðin voða spennt.
En vinir og ættingjar þið megið alls ekki taka því persónulega ef við náum ekki að sjá ykkur í þessari íslandsferð því þetta verður svo stuttur tími á íslandi. Við erum nefninlega að koma til að fara í brúðkaupið og förum svo strax á þriðjudeginum eftir það til Lanzarote. Eftir að við komum frá Lanzarote förum við svo strax morguninn eftir heim til Danmörku aftur. Svo heimsóknir verða ekki fyrr en í næstu ferð til íslands.

Og Tiddi ef þú ert að lesa þá sorrý að ég hafi eyðilagði bíóferðina ykkar Jens í gærkvöldi með þessu slysó veseni en þið finnið bara annan dag í vikunni til að fara í bíó Glottandi

En jæja nú jæja, ég læt þetta nægja og skelli mér upp á við með fótinn minn

Ísland gamla ísland ástkær fósturjörðElísabet Ósk Vigfúsdóttir

Það líður óðum að því að ég komi á klakann og ég er bara að verða voða spennt. En þó held ég ekki eins spennt og hún amma mín hún er allavega alveg að taba sér hi hi en ég verð hjá henni fyrstu dagana þar sem Alda systir verður í ferðalagi. Natan kemur svo til íslands með mömmu svo ég verð með snúllann minn helminginn af tímanum. Harpa María kemur svo heim með okkur eftir langan tíma hjá pabba sínum á íslandi ásamt honum Sindra sem ætlar að vera hér hjá okkur í DK þar til við förum aftur til íslands í ágúst.

Jens er á Roskilde festivalinu núna með Snorra og Per og skemmtir sér örugglega mjög vel. Hann lagði af stað um hádegisbilið í gær og kemur heim aftur annað hvort á Sunnudagskvöldið eða á Mánudagsmorgunninn. Þá bíður hanns cannabis þvagprufa en ég er búin að tilkynna honum það að ég geri þvag test á honum þegar hann kemur heim til að tékka hvort hann hafi verið að reykja jónur þarna ha ha ha
Ég heyrði aðeins í honum í hádeginu og þá tilkynnti hann mér það að hann ætli að reyna að halda í sér þessu nr 2 á meðan hann er þarna því honum langi ekki að skila því í þessa ógeðslegu kamra. Ég vona nú samt að hann geri það ekki. Það er nefninlega alls ekki sniðugt að halda í sér of lengi því þá getur maður átt í erfileikum við að losa sig við það á endanum þegar maður vill svo láta það flakka. Og mig langar ekkert rosalega til þess að þurfa að hjálpa honum að losa vill td ekki þurfa að gefa honum klyks eða eitthvað stíflulosandi upp í afturendann ullabjakkk.

Stóru krakkarnir fóru í smá ferðalag með skólagæslunni í dag. Þau fóru með ferju á eyju hér rétt fyrir utan Horsens og skemmtu sér rosa vel. Enda alveg yndislegt veður 26 gráðu hiti og komu þau rauð, útitekin og sælleg til baka. Ég gat ekki annað en farið við í brugsen og keypt hana þeim frostpinna á leiðinni heim enda tilvalið í þessum hita.

Jæja ég ætla að enda þetta blogg með smá gullmola frá henni Láru sem hún sagði um daginn.

Það var þannig að við vorum í kaffi og köku hjá henni Línu daginn eftir að ég var í lokaprófinu. Lára var mjög einbeitt í því að troða í sig köku og við Lína að spjalla. Mér datt ekki í hug að Lára væri að hlusta á okkur því hún var svo einbeitt í að borða kökuna. Þá fæ ég SMS frá Hólmfríði og Lína spyr hver sé að senda mér SMS. Ég segi að það sé Hólmfríður og að hún sé að spyrja út af útskriftinni hvort það sé eitthvað sérstakt sem ég óski mér.Og ég segji við Línu "jiiii ég hef nú ekki einu sinni náð að hugsa svo langt út af próflestri en nei ég held að það sé nú ekkert sérstakt sem ég óska mér" þá lítur Lára snögglega við og horfir á mig með þvílíkum hneykslunarsvip og segir " en mamma myndiru ekki vilja óska þess að þú sért aftur lítil" ha ha ha hún er alveg bíó þetta barn. Ég spurði hana svo "Lára mín af hverju ætti ég að óska mér þess" og hún svaraði um hæl "þá gætir þú alltaf verið að leika þér og svoleiðis og þyrftir ekkert að hugsa um öll þessi börn. Þú gætir meira að segja alltaf verið að leika við mig" ha ha ha Svo það er spurning hvort að ég hefði kannski bara átt að óska mér þessa. Ætli einhver hefði getað veitt mér þá ósk????

En ég varð að láta fylgja mynd af okkur gömlu bekkjarsystrunum sem eftir urðu í bekknum og útskrifuðumst saman



Fyrsta bloggið sem hjúkrunarfræðingurElísabet Ósk Vigfúsdóttir

Já það kom loksins að því. Á Föstudaginn tók ég á móti plöggunum sem sanna það að núna sé ég orðin hjúkrunarfræðingur jibbiii. Að því tilefni hélt ég smá útskriftarveislu á Laugardagskvöldið og má segja að veislan hafi staðið á framm á Sunnudagsmorgun ha ha ha. Já það var sko heldur betur skemmt sér vel framm eftir allri nóttu og var svaka stuð á öllum. Það komu fullt af gestum og þar á meðal má nefna Gunna (tengdapabba) og Drífu sem komu alla leiðina frá íslandi. Louisa og Lárus komu líka frá Randers og svo komu hinir gestirnir héðan úr nánustu bæum. Til að koma öllum gestunum fyrir fékk ég lánað risa tjald sem var plantað hérna úti á verönd hjá okkur. Ég vil bara segja við alla sem komu og glöddust með mér, takk æðislega fyrir frábært kvöld og flottar gjafir Hlæjandi

Í gær átti ég svo algeran dekurdag. Ég fór með krakkana í skólann og kom svo heim og dúllaði mér við að ganga frá hér heima. Síðan settist ég upp í sófa (með kveikt á sjónvarpinu sem ég geri aldrei á daginn) og fór að lesa séð og heyrt sem Drífa kom með handa mér frá Íslandi. Trúið mér að það hefur ekki gerst í háa herrans tíð að ég hafi bara getað sest í sófann um hábjartan dag og lesið eitthvað sem mér dettur í hug og án þess að þurfa að hafa nokkuð samviskubit. Seinna um daginn kíkti ég í bæin með Línu og Sigga og pantaði mér nafnaskilti/nælu til að bera í vinnunni. Á því stendur: Elísabet Vigfúsdóttir, sygeplejerske. En á gamla skiltinu stendur nefninlega nafnið mitt og sygeplejestuderende og það langar mér sko alls ekki að nota lengur. Eftir smá bæjarrölt fengum við okkur svo pizzu og fórum svo og sóttum krakkana. Mér fannst þetta æðislegur dagur sem endaði fyrir framan sjónvarpið.

Í morgun átti ég svo fyrsta daginn minn í vinnunni sem útlærður hjúkrunarfræðingur. Það var æði að fara aftur í vinnunna. Það var orðið svolítið langt síðan að ég var að vinna eða ekkert frá því um páskana því ég hef haft svo mikið að gera.
Mér finnst rosa spennandi breytingar sem eru í stafni framm undan á deildinni. Deildin á að flytja af sjöttu hæð sem hún er núna á aðra hæð þar sem sængurkvenna hótelið er(hreyðrið eins og það kallast á íslensku). En á sjöttu hæðinni á að vera göngudeild fyrir börn og ungabörn. Og svo er planið að á sængurkvennaganginum verði möguleiki á að sinna líka nýfæddum veikum börnum og fyrirburum. En eins og er má ekki vera mikið að hjá börnunum til þess að þau séu flutt allaleið til Randers þar sem vökudeildin er. Þessar breytingar eiga að eiga sér stað fljótlega eftir sumarfrí.

Jæja ég ætla ekki að hafa þetta lengra að sinni því ég ætla að fara að koma mér í bólið þar sem ég þarf að vakna svo snemma í fyrramálið.

PS klukkan er ekki rétt hérna fyrir neðan bara svona svo engin haldi að ég sé að fara svona snemma í bólið. Ég veit ekki hvernig ég á að laga þessa vitlausu tímasetningu.

Það jafnast ekkert á við það, að þruma sér í gott sólbaðElísabet Ósk Vigfúsdóttir



Varð að setja inn mynd af sætustu systrum í heimi Hlæjandi

Þá fer að koma að stóru stundinni. Eftir tvær vikur verður lokaprófið og mín bara orðin hjúkka jibbiii.
Við skiluðum verkefninu á miðvikudaginn og það var ekkert smá góð tilfinnig. Ég er líka búin að njóta veðursins út í yrstu æsar síðan og ekkert byrjuð að lesa fyir prófið en ég fer að byrja. En það var svo nauðsýnlegt að taka smá pásu eftir öll verkefnasrifin.

Á föstudaginn seinasta fórum við fjölsyldan í kobarbrúðkaup hjá Heidi og Martin sem búa hér rétt hjá okkur. Martin er með Jens í matarklúbb, þannig kynntumst við þeim. Það var eitthvað af hjónum úr matarklúbbnum svo við þekktum töluvert af fólki í veislunni. Það vara rosa gaman, grillaðar pylsur, gos og bjór og svo var meira að segja hljómsveit í garðinum.
Þegar leið svo á kvöldið fór fólk að koma börnunum sínum heim og mættu aftur. Þess vegna redduðum við því að koma krökkunum í pössun svo við gætum sitið áfram með fólkinu. Lára fór alveg á kostum í veislunni með hljómsveitinni með þvílíkum gítartilþrifum á leikfangagítar. Ég sagði mömmu að hún yrði að koma við til að sjá Láru rokkstjörnu og mamma fékk hláturkast yfir öllum rokk tilþrifunum hjá barninu. Hún er líka búin að suða um gítar síðan ha ha ha

Á laugardaginn fór ég með krakkana á ströndina með Sylvíu, Fannari og Tinnu. Ég leyfði líka Sigrúnu koma með því Lína var ekki að treysta sér ein með krakkana og Sigrúnu langaði svo á ströndina. Það var voða notó í allri sólinni og öllum hitanum á ströndinni og ber ég þess merki, já er með þvílík brjósthaldaraför á öxlunum.
Eftir ströndarferðina skilaði ég Sigrúnu heim og sótti Jens og við keyrðum í bambagarðinn og fórum svo á pizza hut.

Á sunnudaginn var Lára allan daginn hjá honum Tidda vini okkar að leika við Dagrúnu dóttur hans. Það var nefninlega pabbavika hjá honum og skvísurnar fengu að leika sér saman.
Jens og Viktor fóru með Martin og sonum hans út í sveit að keyra krossara. Við Natan komum svo þangað og þá var Heidi og dóttir þeirra Martins líka komnar í allann krossara gauraganginn. Þau buðu okkur svo heim til sín í grill og krakkarnir grilluðu snörubrauð á báli í garðinum, voða huggó.

Þessi helgi var semsagt rosalega fljót að líða enda var nóg fyrir stafni.

Á Föstudagskvöldið fer ég svo í bíó á sex in the city með skvísunum. Sylvía pantaði miða fyrir okkur fyrir þó nokkru síðan.

Á Laugardaginn förum við öllsömul í Djurs sommerland ásamt Hólmfríði og co og Línu og co. Við vorum svo heppin því Hólmfríður bauð okkur að kaupa svo ódýra miða sem þau gátu reddað í gegnum verkalýðsfélagið hjá Dennis. Við gátum að sjálfsögðu ekki neitað svo góðu tilboði. Við höfum heldur aldrei farið þangað þrátt fyrir að krakkarnir séu marg búin að byðja okkur að fara þangað. Vá hvað þau verða yfir sig hrifin þegar að þau fá fréttirnar en við erum ekki en búin að segja þeim frá því að við séum að fara þangað.

14 til 20 júlí er ég búin að panta mér far til íslands með múttu. Ragnar frændi bauð okkur í brúðkaup svo ekki var annað hægt en að skella sér svo við mæðgurnar myndum ekki missa af því.
Sindri bróðir hans Jens kemur svo með okkur mömmu hingað út til DK aftur og ætlar að vera hjá okkur þar til að við öll förum svo til Íslands í brúðkaupið til Louisu og Lárusar. Þaðan förum við svo öll til Lanzarote í tvær vikur. Það verður eflaust mjög gaman.

Sveitaball, já ekkert jafnast á við sveitaballElísabet Ósk Vigfúsdóttir

Jæja komin tími á smá fréttir af gömlu konunni.

Ég hef voðalega lítið annað gert en að læra og skrifa síðan að Alda fór. Jú ég sinni heimili og börnum, fer í ræktina, ét og sef, svo ekki hef ég nú af miklu að segja.

Reyndar fórum við Jens á hvítasunnuhátíð hér í bænum síðastliðið Laugardagskvöld . Það voru nefninlega nokkur hjón úr matarklúbbnum hans Jens að fara og Jens keypti miða fyrir okkur svo við gætum skellt okkur með.
Þetta var mjög fín hátíð, alveg ágætis matur en vantaði þó sósuna. Það var ekki einu sinni hægt að kenna íslenskri sósumenningu um að mér hafi fundist vanta sósu með matnum því dönunum fannst hana líka vanta.
Eftir matinn var svo voða skemmtilegt ball með hljómsveit og alles. Hljómsveitin spilaði nokkra danska slagara í bland við önnur þekkt balllög. Þetta var sannkallað sveitaball. Eftir ballið komu svo eitthvað af hjónunum heim til okkar þar sem við vorum barnlaus.
Já krakkagreyin voru dreyfð út um allan bæ. Viktor Máni hjá Vikari vini sínum, Lára hjá ömmu sinni og Natan hjá Hólmfríði systir.

Morguninn eftir komu svo fullt af gestum til okkar og það var voða huggulegt hjá okkur hérna út á palli í öllum hitanum.

Ég lenti í þvílíkt fyndnu atviki í ræktinni í gær. Á þriðjudags og fimmtudags seinnipörtum er ákveðin tími sem er mjög erfiður og því mikið sömu aðilarnir sem sækja þennan tíma. Við spjöllum öll mikið saman og svona einskonar kjarni sem hefur myndast. Ég hef mikið verið að tala við eina konu í þessum tímum og heilsa henni líka ef ég hitti hana út fyrir þessa tíma.
Í gær vorum við gjersamlega búnar á því eftir tímann og í sturtunni sagði ég "jæja þá er ég tilbúin að fara heim að læra" og þá spyr hún mig hvað ég sé að læra sem ég segji henni. Þá segist hún líka vera hjúkrunarkona og ég spyr hvar. Þá er hún yfirhjúkrunarkona á bæklunardeildinni hér í Horsens. Bara fyndið.
Hún spurði hvort ég væri búin að fá vinnu og ef ég hefði áhuga á bæklunardeild þá myndi hún alveg vilja fá mig í vinnu því hún var svo viss um að ég væri dugleg.
Huummmmmmmmmmm ætli ég sé svona dugleg í ræktinni og hún sé haldi það út frá því ha ha ha ha
Eða kannski getið sig til um að ég hljóti að vera dugleg þar sem ég sagði henni að ég væri allavegana búin að fá tvö atvinnutilboð???
Eða er svona rosalega mikil vöntun á hjúkrunarkonum? Endilega getið frekar á eitt af tveim fyrrnefndu getgátunum, hentar mér betur hi hi

Í kvöld var búið að bjóða mér í matarboð til Maiu sem var með mér í bekk, ásamt hinum skvísunum fjórum, fyrrverandi gruppufélögunum. Maia ætlaði að elda handa okkur og svo ætluðum við að spila saman einhver skemmtileg spil. En því miður verður ekkert úr þessu að sinni því Maia hringdi áðan og sagðist þurfa að aflýsa þessu matarboði þar sem að tengdapabbi hennar hafi verið að greynast með krabbamein fyrr í dag. Bara sorglegt þetta blessaða krabbamein.

Á morgun ætlum við að fara í leikjar og grísaveislu hjá íslendingafélaginu og á Sunnudag förum við í afmæli hjá fyrirtækinu sem Jens er að vinna hjá. Fyrirtækið er búið að leigja Cirkus Arena og svo er einn af vinsælustu kokkum í DK sem eldar mat. Svo ekki er við öðru að búast en svaka veislu. Krakkarnir eru líka ferlega spennt yfir cirkusnum.

Svona til að enda þetta þá var mamma í prófi í gær. Já prófi í hreinlæti og matvælum úr kúrsúsi sem hún er búin að vera í undanfarna daga um fyrrnefnda efni á vegum vinnunar. Konu greyið er búin að vera svo stressuð og viss um að hún myndi ekki ná prófinu. En það gerði hún sko og með glæsibrag. Frábært hjá henni. Mamma ætlaru ekki að bjóða mér út að borða til að halda upp á þetta hi hi hi Ég ætla allavega að bjóða þér í veislu þegar að ég er búin í prófinu. Jiibiiiiiiii ég get ekki beðið.

En svona þar til næst, farið vel með ykkur og verið góð við hvert annað. Og munið að stundum er betra að éta yfir sig en tala yfir sig, því þá er öll dýrin í hálsaskóginum vinir.
Knús, knús

sumarið er komið, svona á það að veraElísabet Ósk Vigfúsdóttir



Það er sko óhætt að segja að sumarið sé komið, búið að vera frábært veður undanfarið og 25 stiga hiti í gær og í dag.

Ég hef haft svo mikið að gera frá því að netið kom aftur í lag að ég hef ekki haft tíma til að blogga neitt.

Amma, afi og Björgvin afi eru búin að vera heima hjá mömmu og pabba. Ágústa, Líney, Alda Rut, Jónas og Tinna Hjá Sylvíu og Alda systir og Þorvaldur Axel hjá okkur.
Allt þetta fólk kom til að vera viðstatt ferminguna hans Fúsa litla bróður. Tja litla bróður ef ég get leift mér að kalla hann það lengur. Ég ætti að fara að venja mig á að segja bara bróðir minn því hann er sko ekki lítill lengur hann er orðin töluvert hærri en ég og ekki er ég nú lítil Brosandi
Fermingin gekk voða vel. Siggi eldaði allan matinn og var maturinn æðislegur. Mamma sá sjálf um eftirréttina og voru þeir líka æðislegir. Meira að segja svo góðir að það hérumbil leið tvisvar sinnum yfir suma í veislunni tralalla fer ekkert nánar út í það neitt.

Það var rosalega gaman að hafa allt þetta fólk og vá hvað ég var búin að sakna Öldu. Við spjölluðum saman langt framm á nætur og kíktum að sjálfsögðu út á lífið líka. Það hitti þannig á að það var íslendingaball síðastliðið laugardagskvöld og fór Alda að sjálfsögðu með okkur skvísunum þangað og skemmti sér alveg konunglega. Fyrir og eftir ballið bauð Ásta okkur heim til sín. Ásta mín takk fyrir það Glottandi
Við Alda kíktum auðvitað líka í verslunarleiðangur til Arhus og hér í bæ líka. Óhætt að segja að hún Alda sé fædd í veslunarhlutverkið.

En út í aðra sálma en gesti og fermingu. Natan er búin að vera heima undanfarið því það er verkfall hjá aðstoðarleikskólakennurum. Ég hef því þurft að taka hann með mér heim til Ditte að skrifa verkefnið. Sem betur fer hafði ég nú tök á því þetta verkfall hefur örugglega komið sér illa fyrir fólk úti á vinnumarkaðnum. En þetta er víst búið að leysast og fer hann aftur í leikskólann á morgun sem er gott fyrir hann því að ég held að hann sé orðin svolítið þreyttur á að koma með mér.

Verkefnið hjá okkur gengur bara vel og erum við farnar að sjá fyrir endan á þessu öllu saman. Ég verð nú að viðurkenna að ég er eiginlega komin með upp í kok á ritgerðarskrifum. Það kemst hérumbil ekkert annað að í hausnum á manni því það fer svo mikill tími í þetta. Því þegar við erum ekki að skrifa þá erum við jú að lesa og undirbúa okkur undir það sem við ætlum að skrifa næsta dag. En við eigum að skila verkefninu 30 mai og svo er lokaprófið 16, 17 eða 18 júní og svo útskriftin sjálf á föstudeginum 20 júní ef ég þá næ prófinu. Nei djók ég hef nú eiginlegar engar áhyggjur á því ha ha ha er meira að segja búin að ákveða að halda smá útskriftarveislu 21 júní.

Mér var boðin vinna á sængurkvennaganginum þegar að ég er búin í skólanum. Ég sagðist þó ekki getað tekið því þar sem að ég yrði í 3 vikur í sumarfríi í júlí (þá er lokað í gæslu og leikskóla og Jens verður ekki í sumarfríi þá) og svo þrjár vikur í ágúst því þá förum við til íslands í brúðkaup hjá Louisu og Lárusi og svo þaðan til lanzerote í tvær vikur með Gunna (pabba hans Jens)og Drífu, börnum þeirra og börnunum hennar Drífu og systkynum hans Jens.
Mér fannst ekki hægt að fara að ráða mig í vinnu og vera að fara taka 6 vikna sumarfrí í sumar enda hefði hún ekki getað ráðið mig upp á það ha ha ha
En ég vinn eftir að ég er búin í skólanum og framm að sumarfríinu í júlí og svo eftir sumarfríið í júlí framm að sumarfríinu í ágúst svo sé ég til hvað ég geri og hvar ég sæki um.

En ég ætla ekki að hafa þetta lengra að sinni því ég verð að koma mér í bólið, er ennþá svo þreytt eftir allt vakeríð framm á nætur með henni Öldu Ullandi



Bilað netiðElísabet Ósk Vigfúsdóttir

Já það er ekki bloggleti að kenna að ég sé ekkert búin að blogga heldur er netið bilað heima. Það kemur maður á morgun eða hinn til að laga það svo ég blogga ekkert fyrr en það er komið í lag.

Vinkonur, við erum vinkonur þrjárElísabet Ósk Vigfúsdóttir



Komin þriðjudagur alveg ótrúlegt hvað tímanum líður.
Það stittist óðum í að ættingjarnir frá íslandi komi hingað til DK í ferminguna hans Fúsa sem verður 27 apríl. Það verður svo gaman að hitta þau öll.
Ég verð þó að viðurkenna að mig hlakkar mest til að fá Öldu systir. Engin má þó taka því neitt persónulega, en systir manns er alltaf systir manns og ég sakkna hennar gífurlega mikið og er líka orðið langt síðan ég hitti hana síðast.

Matarboðið með bekkjarsystrum mínum síðasta laugardagskvöld gekk voða vel. Anna kom og hjálpaði mér að útbúa matinn. Anna mín takk fyrir það. En hún fékk nú líka að borða með okkur stelpunum í staðin Glottandi Ha ha reyndar var ég nú búin að bjóða henni það áður en hún bauðst til að hjálpa mér.
Sylvía fór með Örnu og Brynju (vinkonu hennar Örnu frá íslandi) út að borða og síðan komu þær hingað heim til okkar.
Lína systir kom síðan líka seinna um kvöldið bara sísona öllum að óvörum , bara gaman að því. Við vorum allar í singstar, svaka stuð á okkur.
Að öllu sönglinu liðnu tókum við svo leigara til Horsens í bæinn. Við fórum á Koks (að sjálfsögðu) og þaðan yfir á Benediktes.

Ég hitti fullt af liði á Koks sem er með mér í ræktinni. Eitthvað af starfsfólkinu þaðan, suma sem ég hef oft séð þar og aðra sem ég ekki hafði séð áður. Það var búið að vera einhver samkoma hjá þeim fyrr um kvöldið. Þó nokkuð af þessu "ræktar-liði" elti okkur skvísurnar á Benediktes svo eitthvað höfum við nú verið skemmtilegar. En það vara líka bara skemmtilegt að þau hafi komið þangað líka.
Þegar að ég kom heim úr bænum var ég svo heppin að það var fullt af matarafgöngum frá því fyrr um kvöldið sem ég gat gætt mér á fyrir svefninn.

Natan og Lára eru bæði búin að vera voða veik. Lára fékk eyrnabólgu út frá þessari kvefpest og það sprakk svo í henni hljóðhimnan um helgina.
Natan er með rosa kvef og magaverki og var með nær 40 stiga hita hér í kvöld, kallgreyið.
Þau fengu bæði að vera hjá pabba og mömmu í dag því ég átti tíma í klippingu og strípur sem ég var búin að panta fyrir þó nokkru síðan. Ég er rosalega ánægð með útkomuna enda er ég það nú yfirleitt alltaf. Það var bara þessi gamla kerling sem ég fór til síðast sem tókst á merkilegan hátt að klúðra á mér hárinu.

Frammundan hjá mér er saumaklúbbur hjá Önnu pönnu á fimmtudagskvöld og afmæli hjá Hörpu á laugardag úfffff púfffffff Anna mín hvað ertu að gera mér???
Nei nei segji svona ég þarf bara að puða aðeins aukalega í ræktinni en þá get ég líka étið með góri samvisku Hlæjandi Er meira að segja búin að panta tíma í ræktina bæði laug og sunnudagsmorgun en sjáum nú samt til með það ha ha ha Vel mér nú samt bara einn morguninn á bara eftir að ákveða hvaða. Og gott fyrir mig þá eru barasta engar tímabreytingar þessa helgina svo ég ætti að ná á réttum tíma í ræktina hi hi hi
Svo er ég nú reyndar að fara að vinna föst, laug og sunnudag frá 15-23 á sængurkvennó. Þannig að ég næ nú reyndar bara rétt að kíkja í afmælið hjá Hörpu og fá mér smá kökur áður en ég keyri af stað í vinnuna.

Og svona til að enda þetta blogg mitt þá vil ég vekja fólk til umhugsunar:

Enginn veit fyrr en reynir á
hvort vini áttu þá.
Fyrirheit gleymast þá furðu fljótt
þegar fellur á niðdimm nótt.

Já, sagt er að, þegar af könnunni ölið er,
fljótt þá vinurinn fer.
Því segi ég það, ef þú átt vin í raun,
fyrir þína hönd, guði sé laun.

Því stundum verður mönnum á
styrka hönd þeir þurfa þá
þegar lífið, allt í einu, sýnist einskisvert.
Gott er að geta talað við
einhvern sem að skilur þig.
Traustur vinur getur gert kraftaverk

Mér varð á og þungan dóm ég hlaut,
ég villtist af réttri braut.
Því segi ég það, ef þú átt vin í raun
fyrir þína hönd, guði sé laun.
Síða 1 af 4

Innskráningar kubbur

Teljari

Klukkan