I'm not giving too mutch information, honey ;)
betastud.bloggar.is
Sveitaball, já ekkert jafnast á við sveitaballElísabet Ósk Vigfúsdóttir
Jæja komin tími á smá fréttir af gömlu konunni.Ég hef voðalega lítið annað gert en að læra og skrifa síðan að Alda fór. Jú ég sinni heimili og börnum, fer í ræktina, ét og sef, svo ekki hef ég nú af miklu að segja.
Reyndar fórum við Jens á hvítasunnuhátíð hér í bænum síðastliðið Laugardagskvöld . Það voru nefninlega nokkur hjón úr matarklúbbnum hans Jens að fara og Jens keypti miða fyrir okkur svo við gætum skellt okkur með.
Þetta var mjög fín hátíð, alveg ágætis matur en vantaði þó sósuna. Það var ekki einu sinni hægt að kenna íslenskri sósumenningu um að mér hafi fundist vanta sósu með matnum því dönunum fannst hana líka vanta.
Eftir matinn var svo voða skemmtilegt ball með hljómsveit og alles. Hljómsveitin spilaði nokkra danska slagara í bland við önnur þekkt balllög. Þetta var sannkallað sveitaball. Eftir ballið komu svo eitthvað af hjónunum heim til okkar þar sem við vorum barnlaus.
Já krakkagreyin voru dreyfð út um allan bæ. Viktor Máni hjá Vikari vini sínum, Lára hjá ömmu sinni og Natan hjá Hólmfríði systir.
Morguninn eftir komu svo fullt af gestum til okkar og það var voða huggulegt hjá okkur hérna út á palli í öllum hitanum.
Ég lenti í þvílíkt fyndnu atviki í ræktinni í gær. Á þriðjudags og fimmtudags seinnipörtum er ákveðin tími sem er mjög erfiður og því mikið sömu aðilarnir sem sækja þennan tíma. Við spjöllum öll mikið saman og svona einskonar kjarni sem hefur myndast. Ég hef mikið verið að tala við eina konu í þessum tímum og heilsa henni líka ef ég hitti hana út fyrir þessa tíma.
Í gær vorum við gjersamlega búnar á því eftir tímann og í sturtunni sagði ég "jæja þá er ég tilbúin að fara heim að læra" og þá spyr hún mig hvað ég sé að læra sem ég segji henni. Þá segist hún líka vera hjúkrunarkona og ég spyr hvar. Þá er hún yfirhjúkrunarkona á bæklunardeildinni hér í Horsens. Bara fyndið.
Hún spurði hvort ég væri búin að fá vinnu og ef ég hefði áhuga á bæklunardeild þá myndi hún alveg vilja fá mig í vinnu því hún var svo viss um að ég væri dugleg.
Huummmmmmmmmmm ætli ég sé svona dugleg í ræktinni og hún sé haldi það út frá því ha ha ha ha
Eða kannski getið sig til um að ég hljóti að vera dugleg þar sem ég sagði henni að ég væri allavegana búin að fá tvö atvinnutilboð???
Eða er svona rosalega mikil vöntun á hjúkrunarkonum? Endilega getið frekar á eitt af tveim fyrrnefndu getgátunum, hentar mér betur hi hi
Í kvöld var búið að bjóða mér í matarboð til Maiu sem var með mér í bekk, ásamt hinum skvísunum fjórum, fyrrverandi gruppufélögunum. Maia ætlaði að elda handa okkur og svo ætluðum við að spila saman einhver skemmtileg spil. En því miður verður ekkert úr þessu að sinni því Maia hringdi áðan og sagðist þurfa að aflýsa þessu matarboði þar sem að tengdapabbi hennar hafi verið að greynast með krabbamein fyrr í dag. Bara sorglegt þetta blessaða krabbamein.
Á morgun ætlum við að fara í leikjar og grísaveislu hjá íslendingafélaginu og á Sunnudag förum við í afmæli hjá fyrirtækinu sem Jens er að vinna hjá. Fyrirtækið er búið að leigja Cirkus Arena og svo er einn af vinsælustu kokkum í DK sem eldar mat. Svo ekki er við öðru að búast en svaka veislu. Krakkarnir eru líka ferlega spennt yfir cirkusnum.
Svona til að enda þetta þá var mamma í prófi í gær. Já prófi í hreinlæti og matvælum úr kúrsúsi sem hún er búin að vera í undanfarna daga um fyrrnefnda efni á vegum vinnunar. Konu greyið er búin að vera svo stressuð og viss um að hún myndi ekki ná prófinu. En það gerði hún sko og með glæsibrag. Frábært hjá henni. Mamma ætlaru ekki að bjóða mér út að borða til að halda upp á þetta hi hi hi Ég ætla allavega að bjóða þér í veislu þegar að ég er búin í prófinu. Jiibiiiiiiii ég get ekki beðið.
En svona þar til næst, farið vel með ykkur og verið góð við hvert annað. Og munið að stundum er betra að éta yfir sig en tala yfir sig, því þá er öll dýrin í hálsaskóginum vinir.
Knús, knús
Athugasemdir
3
hófí skrifar:
alltaf gaman ad lesa bloggid thitt:) vááááá hvad var gaman í gær:) thetta var geggjad stud sko:) var bara ordin svo rosalega treytt og fór thví snemma heim:( en kanski eg se meira hvíld næst hehe... endurtokum thetta aftur einhverntíman;) en kvitt kvitt kvitt:)
17. maí 2008 klukkan 09:27
4
Berglind skrifar:
Ég held að þú fáir öll þessi atvinnutilboð vegna þess hversu dugleg þú ert í ræktinni, þú hefur örugglega orð á þér í bænum fyrir dugnað í ræktinni og því hleypur fólk til þín og býður þér vinnu ;)
Annars veit ég að þú ert bara ótrúlega dugleg manneskju og átt þessi atvinnutilboð fullkomlega skilið :)
Hlakka til að hitta ykkur við tækifæri, ég þyrfti nú að koma í stelpuferð til þín við tækifæri og skreppa á eins og eitt gott djamm og í góða verslunarferð með uppáhalds frænkunni minni en þangað til þá bið ég að heilsa :)
Kveðja
Berglind
Annars veit ég að þú ert bara ótrúlega dugleg manneskju og átt þessi atvinnutilboð fullkomlega skilið :)
Hlakka til að hitta ykkur við tækifæri, ég þyrfti nú að koma í stelpuferð til þín við tækifæri og skreppa á eins og eitt gott djamm og í góða verslunarferð með uppáhalds frænkunni minni en þangað til þá bið ég að heilsa :)
Kveðja
Berglind
18. maí 2008 klukkan 16:18
5
Sylvía Rut Jónasdóttir skrifar:
Takk fyrir síðast það var ógeðslega gaman:)
19. maí 2008 klukkan 12:22
6
Mamma skrifar:
Hæ Hæ
Takk fyrir að leiðretta bloggið mitt.Allt eitthvað vitlaust skrifað, svona er þetta bara.Ég læt ykkur bara sjá um að bjóða mer í mat.Þetta er nú mikilu merkilegra hjá þer Elísabet mín.Þið eruð öll svo dugleg her í danaveldi að læra og menta ykkur.Enda erum við svo stolt af ykkur öllum .Og svo er Hólmfríður að byrja í skóla núna í ágúst,bara æði.Og ekki er nú tímin lengi að líða, þú verður orðin HJÚKKA í næsta mánuði, spáðu bara í það.Svo að ég bara læt þig um matarboð.En allvega fannst mer sko nógu erfiður þessi kúsus hjá mer En ég mundi ekki meika ykkar próf það er á hreinu.Ætlaru ekkert að spá í að koma með mer til Íslands, bara smá djók .
Bestu kveðjur mamma,
Takk fyrir að leiðretta bloggið mitt.Allt eitthvað vitlaust skrifað, svona er þetta bara.Ég læt ykkur bara sjá um að bjóða mer í mat.Þetta er nú mikilu merkilegra hjá þer Elísabet mín.Þið eruð öll svo dugleg her í danaveldi að læra og menta ykkur.Enda erum við svo stolt af ykkur öllum .Og svo er Hólmfríður að byrja í skóla núna í ágúst,bara æði.Og ekki er nú tímin lengi að líða, þú verður orðin HJÚKKA í næsta mánuði, spáðu bara í það.Svo að ég bara læt þig um matarboð.En allvega fannst mer sko nógu erfiður þessi kúsus hjá mer En ég mundi ekki meika ykkar próf það er á hreinu.Ætlaru ekkert að spá í að koma með mer til Íslands, bara smá djók .
Bestu kveðjur mamma,
22. maí 2008 klukkan 13:12
8
Alda Ragna skrifar:
'A ekkert að Blogga?kv Alda
26. maí 2008 klukkan 14:33
9
Lina skrifar:
Þú byrjar á því að seigja ég hef nú ekki mikið að seigja og svo kemur svakaleg ritgerð á eftir hehehehe.....
Þú ert bara svona dugleg og svo ertu bara svo hjúkkuleg :) það er ekki skrídið að þær vilja þig allar :)
sjáumst á morgunn :) kveðja lina
Þú ert bara svona dugleg og svo ertu bara svo hjúkkuleg :) það er ekki skrídið að þær vilja þig allar :)
sjáumst á morgunn :) kveðja lina
26. maí 2008 klukkan 21:25
10
Mamma skrifar:
Jæja Elísabet mín ætlar þú ekki að fara skrifa nokkurar línur.Ég veit að það er búið að vera mikið að gera hjá þer. Enda er þetta allt að skella á að þú verður orðin hjúkka. Og æðislegt að þú komir með mer til Íslands,,,,datt það samt ekki í hug þegar að ég var að djóka með það her á blogginu.Og vonandi hefur þú tíma í nokkurar línur.
Kv mamma
Kv mamma
29. maí 2008 klukkan 08:26


EN Elísabet þú minnist ekkert á mig í þessu bloggi, hvað er það eiginlega?